Eyþór Rúnarsson,
yfirkokkur hjá Múlakaffi

_MAC3956.jpg

Eyþór Rúnarsson er fæddur og uppalinn í Suður-Þingeyjarsýslu, um 10 km frá Húsavík, umvafinn íslenskri náttúru, þaðan sem hann hefur ávallt sótt innblástur í störf sín og ástríðan á matargerð kviknaði snemma. "Ég fór til námsráðgjafa þegar ég var 13 ára og spurði hann einfaldlega hvaða námsbrautir innihéldu minnstu stærðfræðina. Hann benti mér á kokkanámið og þá var ekki aftur snúið. Ég varð heltekinn af hugmyndinni og fór á matreiðslubraut Verkmenntaskólans á Akureyri þegar ég varð 16 ára. Hóf störf í eldhúsi 18 ára gamall og hef ekki litið til baka síðan". Ferill Eyþórs hefur verið samfelld sigurganga og hefur hann um langt skeið verið einn af fremstu matreiðslumeisturum okkar landsmanna. "Ég útskrifaðist vorið 2002 og hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að starfa við fagið mitt frá mjög fjölbreyttum hliðum, hvort sem um er að ræða störfin með landsliðinu, spennandi sjónvarpsþáttagerð eða samstarfsverkefni við fremstu veitingastaði landsins". Með þessari uppskriftasíðu vill Eyþór deila með íslenskum áhuga- og ástríðukokkum reynslu sinni og uppskriftum og gefa til baka af sinni einstöku hógværð. "Ég tel mig vera afar heppinn. Ég hef fengið að starfa við mína helstu ástríðu og fengið að kynnast mögnuðum fagmönnum og eins fengið að njóta þess að viðskiptavinir mínir hafa fylgt mér á milli staða og haldið tryggð við mína eldamennsku. Fyrir það er ég þakklátur og þess vegna vildi ég koma þessari uppskriftasíðu á koppinn".

Netfang
[email protected]

 
191278_10150109373993863_3843873_o.jpg
 

Ferilskrá

Starfsnám á Fiðlaranum Akureyri: 1998-2002

Yfirkokkur á Sigga Hall Restaurant: 2002-2008

Yfirkokkur á Ó Restaurant: 2009-2010

Yfirkokkur á Nauthóll Restaurant: 2010-2014 

Yfirkokkur á Gló: 2015-2016

Yfirkokkur á Bazaar Restaurant: 2016-2017

Yfirkokkur hjá Kjöt og Fisk: 2017

Yfirkokkur hjá Múlakaffi frá 2017 til dagsins í dag

Íslenska kokkalandsliðið: Meðlimur frá 2005 - 2011. Fyrirliði frá 2008-2011.


Sjónvarpsþættir

Master Chef Ísland, dómari: 2012-2013

Eldhúsið hans Eyþórs: 2015

Eldhúsið hans Eyþórs: 2016

Sumar og grillréttir Eyþórs: 2016