Bakaður lax með fennel-appelsínu-radísu salati og estragonsósu

Uppskriftin er fyrir 4

 
 

Lax 

  • 800 gr lax roð og beinlaus 

  • Sjávarsalt 

  • Hvítur pipar úr kvörn 

  • Góð olífuolía 

  • 1 sítróna 

Skerið laxinn í ca 200 gr steikur. Setjið laxinn í eldfast mót. Penslið með ólífuolíu undir og yfir laxinn, kryddið laxinn með saltinu og piparnum. Setjið laxinn inn í 190 gráðu heitan ofninn í 12-15 min. Kreistið sítrónusafa yfir laxinn þegar hann er kominn út úr ofninum.

Fennel-appelsínu og radísu salat 

  • 8 stk radísur 

  • 2 stk fennel 

  • 2 stk appelsínur 

  • 1 poki klettasalat 

  • 2 msk  góð extra virgin ólífuolía  

  • Sjávarsalt 

  • Svartur pipar úr kvörn 

Skerið radísurnar og fennelið í þunnar ræmur. Skrælið og skerið appelsínurnar í fallega bita. Setjið allt saman í skál með klettasalatinu og ólífuolíunni og kryddið með saltinu og piparnum.

Estragonsósa 

  • 1 stk laukur 

  • 1 stk hvítlauksrif 

  • Olía til steikingar 

  • 80 ml hvítvínsedik 

  • ½ liter vatn 

  • Kjúklingakraftur eða grænmetiskraftur   

  • ½ liter rjómi 

  • Sjávarsalt 

  • Hvítur pipar úr kvörn 

  • 1 msk estragon fínt skorið(má nota þurrkað)

Skrælið og skerið laukinn smátt niður. Hellið olíu í pott og steikið laukinn þar til hann er orðinn mjúkur (hann á alls ekki að brúnast). Hellið edikinu yfir laukinn og látið það sjóða í 2 min, bætið vatninu út á og sjóðið niður um ca helming. Hellið svo rjómanum yfir og látið hann sjóða niður um ca helming. Maukið sósuna með töfrasprota og smakkið hana til með kraftinum, saltinu og piparnum. Setjið estragonið út í sósuna rétt áður en þið berið hana fram.

ER3128.jpg
Previous
Previous

Laxaflök í engifer- og döðludressingu með bökuðu grænmeti í grískri jógúrt og myntu