Graflax og graflaxsósa

Uppskriftin er fyrir 8

 
 
  • 1 laxaflak 

  • 250 gr púðursykur 

  • 250 gr gróftsalt 

  • ½  msk dill

  • ½ msk kórianderfræ 

  • ½ msk fennelfræ 

  • ½  msk dillfræ 

  • ½  msk sinnepsfræ  

  • ½  staup af íslensku brennivíni eða vodka (má sleppa)

Blandið sykrinum og saltinu saman í skál. Stráið 1/3 af saltblöndunni á bakka og leggið laxaflakið ofan á það. Hellið restinni af salt og sykurblöndunni yfir laxaflakið og nuddið vel inn í laxinn. Stráið þurrkryddunum jafnt yfir allt laxaflakið. Dreifið víninu yfir og setjið flakið inn á kæli og látið standa í 16 tíma. Snúið svo flakinu á hina hliðana og látið standa í aðra 16 tíma. Takið flakið af bakkanum og pakkið því vel inn.

Graflaxsósa 

  • 200 gr majónes 

  • 80 gr dijonsinnep  

  • 80 gr púðursykur  

  • 1 msk þurrkað dill

Setjið allt hráefni saman í hrærivélarskál og vinnið saman í ca 4 mínútur. Eða þar til að sykurinn er allur búinn að leysast upp.Geymið í kæli yfir nótt.

Next
Next

Uppstúf/jafningur