Hægeldaður lambaskanki með osta kartöflumús og reyktri paprikusósu

Uppskriftin er fyrir 4

 
 

Lambaskanki og reykt paprikusósa 

  • 4 stk lambaskankar 

  • 2 stk laukar (skrældir og gróft skornir)

  • 2 stk hvítlauksrif (gróft skorin)

  • 1 stk rauð paprika (kjarnhreinsuð og gróft skorin) 

  • 1 tsk þurrkað timian 

  • 1 msk reykt paprika (duft) 

  • 350 ml rauðvín 

  • 1,4 líter vatn og lambakraftur (eða nautasoð og vatn til helminga) 

  • 2 msk tómatpúrre 

  • 1 hvítlauksrif (fínt rifið)

  • ½ bréf ferskt dill

  • 1 stk sítróna 

  • 100 gr smjör 

  • ólífuolía til steikingar 

  • sjávarsalt 

  • svartur pipar úr kvörn 

Setjið olíu í stóran pott og brúnið lambaskankana þar til þeir eru orðnar gylltir allan hringinn. Takið lambaskankana upp úr pottinum og setjið allt grænmetið í pottinn og brúnið þar til það er farið að mýkjast. Bætið kryddunum og tómatpúrreinu út í pottinn og steikið með í ca. 1 mín. Hellið víninu, vatninu og kraftinum út í pottinn og kjötinu svo í lokin. Setjið pottinn á væga suðu og lokið yfir. Eldið kjötið í ca 3 klst. eða þar til kjötið fer að losna af beinunum.



Sósan

Takið grænmetið og 200 ml af vökva úr pottinum og maukið saman með töfrasprota ásamt 100 gr smjör. Ef að ykkur finnst sósan vera of þunn bætið þið tómatpúrre út í eftir smekk. Smakkið sósuna til með salti, pipar og safa úr einni sítrónu.

Lambaskankinn

Þegar kjötið er tilbúið takið þið það upp úr pottinum og rífið gróft niður og setjið í pott með ca 8 msk af sósu. Smakkið það til með fínt rifnum hvítlauk, sítrónusafa, salti, pipar og í lokin ferska dillinu.

Blaðlaukskartöflumús með með feyki og dilli

  • 4 stk bökunarkartöflur (bakaðar og afhýddar)

  • 200 gr blaðlaukur (fínt skorinn)

  • 70 gr smjör 

  • 1 peli rjómi 

  • 100 gr feykir (rifinn niður)

  • 4 msk gróft skorið dill 

  • ólífuolía til steikingar

  • sjávarsalt 

Hitið pott með smá olífuolíu og öllu smjörinu út í og steikið blaðlaukinn þar til hann er orðinn mjúkur í gegn. Bætið rjómanum út í pottinn og látið hann sjóða varlega í 5 mín. Bætið bökunarkartöflunum út í ásamt Feyki og blandið öllu vel saman. Þegar allt er orðið heitt og osturinn bráðnaður smakkið þið músina til með salti og bætið dilli út í.

Steikt rótargrænmeti og sveppir

  • 4 gulrætur (skrældar og skornar í teninga)

  • ½ sellerírót (skræld og skorin í teninga)

  • ½ box sveppir (skornir í 4-6 hluta)

  • 1 msk smjör  

  • 2 msk gróft skorið dill

  • Sjávarsalt 

  • Svartur pipar úr kvörn

  • ólífuolía til steikingar

Hitið pönnu með ólífuolíu og smjöri, setjið gulræturnar, sellerrótina og sveppina á pönnuna og steikið þar til allt er orðið mjúkt í gegn. Kryddið til með salti og pipar og blandið dillinu saman við í lokin.

ER2505.jpg
Next
Next

Lambafille í kartöfluhjúp með kremuðum sveppum og blaðlauk