Kartöflu frittada með aspas og kryddpylsum

 

Uppskriftin er fyrir 4

 
  • 1 stk rauðlaukur  

  • 1 búnt ferskur aspas 

  • 200 gr Stjörnugrís cheddar og chipotle pylsur (skornar í bita)

  • 250 gr soðnar og skrældar kartöflur (skornar í bita)

  • 8 egg 

  • 50 gr parmesanostur (rifinn)

  • 1 stór kúla mozzarellaostur

  • 2 msk fínt skorinn graslaukur 

  • Olífuolía til steikingar 

  • Sjávarsalt 

  • Pipar úr kvörn 

Skrælið og skerið laukinn í þunnar sneiðar, skerið trénaða endann af aspasnum og skerið hann svo í fernt. Hitið pönnu með ólífuolíu, steikið laukinn, aspasinn og kryddpylsurnar  við vægan hita í ca 3 min. Bætið kartöflunum út á pönnuna og steikið í ca 3 min í viðbót. Pískið eggin og parmesanostin saman í skál og kryddið með salti og pipar. Hellið eggjunum yfir og blandið þeim saman við grænmetið með sleif. Rífið mozzarellostinn með höndunum yfir pönnuna. Setjið pönnuna inn í 180 gráðu heitann ofninn í 15 min. Eða þar til eggin eru elduð í gegn. Berið fram með kirsuberjatómötum, klettasalati og góðri ólífuolíu.

Previous
Previous

Grillað grísafilet með BBQ sósu og maíssalati

Next
Next

Morgunverðar quesadilla með pepperoni pylsum