Eplasalat

Uppskriftin er fyrir 12

 
 
  • 200 gr sýrður rjómi

  • 100 ml þeyttur rjómi

  • 50 gr flórsykur

  • 3 msk hlynsírop (maple síróp)

  • 3 msk Grand Mariner

  • 4 stk græn epli 

  • 4  stk sellerístilkar

  • Vínber og valhnetur til skreytingar

Setjið allt hráefnið nema eplin og selleríið saman í skál og hrærið það vel saman. Skrælið og skerið eplin í  fallega teninga, skerið selleríið helmingi minna en eplin. Blandið öllu saman í skál og skreytið með ristuðum valhnetum og bláum vínberjum.  

Previous
Previous

Uppstúf/jafningur

Next
Next

Rauðkál