Hreindýravöðvi í sveppahjúp

Uppskriftin er fyrir 4

 
 
  • 800 gr fullhreinsaður hreindýravöðvi 

  • 2 box sveppir (smátt skornir )

  • 5 stk skallotlaukur (skrældur og smátt skorinn)

  • 1 hvítlauksrif (fínt rifið)

  • 4 msk brauðraspur

  • 1 poki spínat (100 gr)

  • Ólífuolía til steikingar

  • Svartur pipar úr kvörn

  • Sjávarsalt  

Hitið pönnu með olíu á og steikið sveppina í 3 mín, bætið lauknum út á pönnuna og steikið þar til laukurinn og sveppirnir eru orðnir gullin brúnir. Steikið spínatið upp úr ólífuolíunni, setjið það á skurðarbretti og skerið það niður.  Setjið laukinn, sveppina og spínatið í skál með hvítlauknum og brauðraspnum. Smakkið til með saltinu og piparnum.

Hitið pönnu með olíu og brúnið hreindýrið allan hringinn í ca. 30 sek á hvorri hlið setjið í eldfast mót og hjúpið vöðvann með sveppablöndunni. Setjið inn í 180 gráðu heitan ofninn í 13 mín. Takið út og setjið bakka yfir og látið hvíla í 10 mín. Gott er að kjötið nái 52-54 gráðum í kjarnhita. 


Kremuð sveppasósa 

  • 1 stk hvítur laukur 

  • 2   hvítlauksrif 

  • Olía til steikingar 

  • 100 ml hvítvín (má sleppa)

  • 200 gr blandaðir frosnir villisveppir 

  • ½ líter rjómi 

  • 150 ml kjúklingasoð eða vatn og kraftur 

  • Safi úr 1 stk lime 

  • Sjávarsalt 

  • Svartur pipar úr kvörn 

  • Kjúklingakraftur 

Skrælið og skerið laukinn og hvítlaukinn í þunnar skífur. Steikið laukinn við lágan hita þar til hann er orðinn mjúkur í gegn. Hellið hvítvíninu yfir laukinn og sjóðið það niður um helming. Hellið soðinu (eða vatninu) og rjómanum í pottinn og sjóðið við lágan hita í ca 30 mín eða þar til að sósan fer að þykkna. Maukið sósuna með töfrasprota. Smakkið hana til með lime safanum, salti, pipar og kjúklingakraftinum eftir smekk.

Graskers-, peru- og gráðostasalat 

  • 400 gr grasker skorið í kubba 

  • 1 stk rauðlaukur gróft skorinn

  • 1 msk rauðvínsedik 

  • 1 msk sykur 

  • 1 stk fullþroskuð pera 

  • 4 msk ristaðar pekanhnetur (5 mín 180 gráður)

  • 20 steinlaus vínber 

  • 2 msk gráðostur

  • 2 msk sýrður rjómi

  • ólífuolía 

  • sjávarsalt 

  • svartur pipar 

Bakið graskerið við 180 gráðu hita í 30 mín og kælið það niður. Setjið rauðlaukinn í eldfast mót.  Veltið honum upp úr edikinu, sykrinum, saltið og piprið og bakið í 10 mín við 180 gráður. Skerið peruna og vínberin niður og setjið í skál með rauðlauknum og graskerinu. Blandið hnetunum út í ásamt sýrða rjómanum og gráðostinum og smakkið til með salti og pipar. 

Previous
Previous

Rauðkál

Next
Next

Epla og brómberjakaka með vanillumascarapone kremi