Humarsalat á smjördeigsbotni með grilluðum aspas og sítrónu

Uppskriftin er fyrir 4

 
 
  • 50 gr majónes 

  • 50 gr sýrður rjómi   

  • 500 gr humar í skel - ca. 200 gr pillaður humar 

  • 1 grænt epli - skrælt og skorið í litla kubba 

  • Safi úr ½ sítrónu 

  • ½ hvítlauksrif - fínt rifið

  • 1 msk skorið dill

  • ólífuolía til steikingar 

  • Sjávarsalt 

  • Hvítur pipar úr kvörn.

Steikið humarinn upp úr ólífuolíunni og kryddið með saltinu og piparnum. Kælið humarinn. 

Blandið saman majónesinu, sýrða rjómanum, sítrónusafanum og hvítlauknum. Smakkið blönduna til með saltinu. Skerið humarinn niður í bita og bætið út í blönduna með eplunum og dillinu. Smakkið til með salti og pipar eftir smekk 


Grillaður smá aspas 

  • 16 stk smáaspas 

  • 4 msk ólífuolía 

  • Sjávarsalt 

  • Svartur pipar úr kvörn

Setjið aspasinn í eldfast mót, hellið ólífuolíunni yfir hann og veltið honum vel upp úr ólíunni. Setjið aspasinn á heita grillpönnu og grillið í 2 mín á hvorri hlið. Kryddið með sjávarsalti og svörtum pipar úr kvörn.


Smjördeigs botn

  • 1 plata myllu smjördeig 

  • hvítlauksolía 

  • sjávarsalt 

Hitið ofninn upp í 220 gráður. Skerið plötuna í 4 bita. Penslið smjördeigið með hvítlauksolíu báðum megin. Setjið á bökunarplötu með smjörpapír í botninum og svo aðra plötu yfir. Bakið í 10-15 min. 

Previous
Previous

Steiktar rjúpubringur á kremuðu grænkáli með bláberjum og gráðosti

Next
Next

Humarsúpa