Humarsúpa

Uppskriftin er fyrir 10

 
 

Humarsoð 

  • 2- 3 kg humarskel (eða ca 2 fullar ofnskúffur)

  • 1 msk paprikuduft 

  • 1 stk sellerírót 

  • 2 stk stórar gulrætur 

  • 1 stk blaðlaukur 

  • 5 hvítlauksrif 

  • 2 msk tómatpurré

  • 3 lárviðarlauf 

  • 15 hvít piparkorn 

  • Olía til steikingar 

  • ½ hvítvínsflaska (Má sleppa)

Setjið humarskelina og bökunarplötu og dreifið paprikuduftinu jafnt yfir. Setjið inn í 180 gráðu heitan ofn í ca 20 mín eða þar til paprikuduftið er farið að brúnast. Á meðan skelin er inni í ofninum skrælið þið og skerið grænmetið í grófa bita. Setjið upp stærsta pott heimilisins helst 8-10 litra. Setjið olíu í pottinn  og byrjið að léttsteikja grænmetið. Þegar skelin er orðin brúnuð bætið þið henni út í pottinn með grænmetinu, kryddunum og tómatpúrrunni. Gott er að hella ½ flösku af hvítvíni með í pottinn og láta hana sjóða niður um helming áður en þið hellið vatninu út í en það má líka sleppa því. Hellið ca 4-6 litrum af vatni út pottinn og látið suðuna koma rólega upp, látið soðið sjóða í 1 klukkutíma við væga suðu. Setjið lok á pottinn og látið soðið standa á köldum stað yfir nótt t.d úti á svölum. Það er líka hægt að sigta soðið strax og laga súpuna svo en soðið verður bragðmeira með því að standa yfir nótt.

Súpan

  • Humarsoð ca 3 litrar 

  • 200 gr smjör 

  • 400 gr hveiti

  • 1 liter af rjóma 

  • ¼ flaska af hvítvíni 

  • Cognac eftir smekk 

  • Fínt salt 

  • Hvítur pipar úr kvörn 

Sigtið soðið og sjóðið upp á því. Bræðið smjörið og setjið hveitið út í það og blandið vel saman, þá hafið þið þessa fínu smjörbollu. Bætið smjörbollunni smám saman út í soðið og pískið vel á meðan. Hafa skal í hug að það þarf ekki að nota alla smjörbolluna heldur á að þykkja súpuna þar til hún er eins þykk og þú vilt hafa hana. Þegar súpan er passlega þykk er rjómanum bætt út í og hann pískaður vel saman við, látið rjómann sjóða varlega í súpunni í ca 10 min og hellið svo hvítvíninu út í.  Smakka svo súpuna til með saltinu, piparnum og cognacinu ef að ykkur finnst vanta smá kraft í súpuna þá er í lagi að setja smá humarkraft eða örlítið af blautum kjúklingakrafti. 

Previous
Previous

Humarsalat á smjördeigsbotni með grilluðum aspas og sítrónu

Next
Next

Heilsteikt önd með sveppa og trönuberjafyllingu