Osso bucco með hvítlaukskartöflumús, steiktum gulrótum og piparrót

Uppskriftin er fyrir 4

 
 
  • 4 stk Osso bucco 

  • 100 gr hveiti

  • 1 stk laukur (skrældur og fínt skorin)

  • 200 gr gulrætur (skrældar og gróft skornar) 

  • 4 sellerístilkar (fínt skornir)

  • 4 hvítlauksgeirar (gróft skornir)

  • 1 Líter vatn 

  • 1 teningur kjötkraftur  

  • 400 gr tómatar í dós

  • 2 stk lárviðarlauf 

  • 350 ml rauðvín  

  • Sósujafnari 

  • Sjávarsalt 

  • Svartur pipar 

  • Sítrónusafi

  • Sjávarsalt 

  • Svartur pipar úr kvörn

  • Ólífuolía til steikingar 

  • Piparrót 

Hitið stóran pott með olíu í botninum. Veltið osso bucco-inu upp úr hveitinu og steikið í ca 2 min á hvorri hlið. Bætið grænmetinu út í pottinn og og steikið með í ca 2 min. Hellið rauðvíninu út í og látið það sjóða niður um helming. Bætið tómati, vatni, lárviðarlaufum og kjötkrafti út í og látið allt sjóða við væga suðu í 2,5 tíma eða þar til kjötið er orðið meyrt. Takið kjötið upp úr soðinu og sigtið vökvann í gegnum sigti yfir í annan pott. Hitið upp á vökvanum og smakkið til með rauðvíni, kjötkrafti og salti og pipar. Þykkið sósuna eftir smakk og ausið henni yfir osso bucco-ið áður en þið berið það fram. Rífið í lokinn vel af piparrót yfir kjötið og berið það fram með kartöflumúsinni.



Hvítlaukskartöflumús  

  • 4 stk bökunarkartöflur (bakaðar og afhýddar)

  • 250 ml rjómi 

  • 4 msk gróft skorin ítölsk steinselja 

  • 1 stk hvítlauksgeiri (fínt rifinn)

  • sjávarsalt 

Setjið rjómann út í pottinn ásamt fínt rifna hvítlauknum og látið hann sjóða varlega í 5 mín. Bætið bökunarkartöflunum út í, blandið öllu vel saman og smakkið til með saltinu. Hrærið steinseljunni útí í lokinn. 


Steiktar gulrætur 

  • 4 gulrætur ca 500 gr (skrældar og skornar í teninga)

  • ólífuolía til steikingar

  • 1 msk smjör  

  • 2 msk gróft skorin steinselja 

  • Sjávarsalt 

  • Svartur pipar úr kvörn

Hitið pönnu með ólífuolíu og setjið gulræturnar á pönnuna og steikið þar til þær eru mjúkar í gegn. Kryddið með salti og pipar og blandið steinseljunni saman við í lokinn.

ER2517.jpg
Previous
Previous

Hægeldað nautafille með sveppa- og kartöflugratíni

Next
Next

Heilsteikt nautalund í pipar og villisveppahjúp með fylltum kartöflum