Túnfisksalat með chilli

Uppskriftin er fyrir 4

 
 
  • 1 dós túnfiskur í vatni

  • 250 gr majones

  • 1 stk grænt epli

  • ½ stk rauðlaukur (50 gr)

  • 3 stk harðsoðin egg skorin í smáa bita með eggjaskera

  • ½ búnt graslaukur (25 gr) fínt saxað

  • 1 msk chili sambal

  • fínt salt

Sigtið vatnið frá túnfisknum og hrærið saman við majonesið. Skolið eplið og kjarnhreinsið,  skerið eplið í litla bita og rauðlaukinn smátt niður. Hrærið svo allt saman.

Previous
Previous

Rækjusalat

Next
Next

Skinkusalat