Fiskur og franskar með tartarsósu

Uppskriftin er fyrir 4

 
 

Ýsa í bjórdeigi 

  • 800 gr ýsa 

  • 100 gr gróft salt 

  • 200 gr hveiti 

  • 4 gr paprikuduft 

  • 4 gr laukduft (blanda saman öllum þurrefnum)

  • 2 stk sítróna 

Stráið helmingnum af saltinu á bakka og leggið ýsuna ofan á það. Takið hinn helminginn af saltinu og dreifið yfir ýsuna. Látið saltið standa í 20 mín. Skolið saltið af ýsunni undir köldu vatni og þerrið hana með eldhúsbréfi. Skerið ýsuna í ca 30 gr steikur þvert á flakið. Veltið ýsunni upp úr hveitiblöndunni og setjið hana svo í bjórdeigið og steikið í ca. 3 mín eða þar til hún er orðin gyllt og falleg á litinn. Setjið á grind og látið olíuna leka af henni. Berið fiskinn fram með sítrónubát.


Bjórdeig 

  • 550 gr bjór 

  • 50 gr vodka (má sleppa)

  • 400 gr hveiti

  • 10 gr salt 

  • 10 gr matarsódi 

Sigtið öll þurrefnin saman í skál og blandið svo bjórnum og vodkanum smá saman út í og hrærið í á meðan.

Heimagerðar franskar

  • 6 stk bökunar kartöflur 

  • 4 lítrar af olíu til djúpsteikingar 

  • sjávarsalt 

  • Svartur pipar 

  • 8 L vatn

  • 100 ml borðedik

Skerið kartöflurnar í stórar franskar og setjið í sjóðandi vatn með edikinu og sjóðið þar til þær eru alveg að verða soðnar í gegn. Setjið franskarnar á grind með bakka undir og inn í ísskáp. Látið kólna þar í 30 mín. Þetta er gert til að franskanar myndi húð að utan svo að þær verði stökkari. Takið franskarnar út úr ísskápnum og setjið í 130 gráðu heita olíu og steikið þær þar í 8 mín. Setjið þær aftur á grind og látið olíuna leka af þeim. Setjið franskarnar því næst inn í frysti og frystið þær. Takið franskarnar út úr frystinum og látið standa út í ca 5 mín og setjið þær svo í 180 gráðu heita olíu og steikið í ca 5 mín. Kryddið með saltinu og piparnum.


Tartarsósa með dilli 

  • 250 gr majónes 

  • 50 gr súrar smá gúrkur (smátt skornar)

  • 40 gr kapers

  • 1 msk skallotlaukur (fínt skorinn)

  • ½ sítróna 

  • Sjávarsalt 

  • Svartur pipar  

  • 2 msk gróft skorið dill

Setjið allt hráefnið saman í skál og blandið vel saman, Smakkið sósuna til með sítrónusafa og salti og pipar. 

ER2579.jpg
Previous
Previous

Bleikjubollur með steiktum hrísgrjónum og karrýkókossósa

Next
Next

Steiktur saltfiskhnakki með lauksultu, tómat-vinaigrette og sinnepskartöflumús.