Nautakinnar með tagliatelle pasta kirsuberjatómötum og reyktri paprikusósu

Uppskriftin er fyrir 4

 
 

Nautakinnar og reykt paprikusósa 

  • 600 gr nautakinnar  

  • 2 laukar (skrældir og gróft skornir)

  • 2 hvítlauksgeirar (skrældir og gróft skornir)

  • 1 stk rauð paprika (kjarnhreinsaðar og gróft skornar) 

  • 1 tsk þurrkað timian 

  • 1 msk reykt papriku duft 

  • 350 ml rauðvín 

  • 1,4 Líter vatn og nautakraftur

  • 2 msk tómatpurré 

  • ½ hvítlauksrif (fínt rifið)

  • 1 stk sítróna safi og börkur

  • Ólífuolía til steikingar 

  • Sjávarsalt 

  • Svartur pipar úr kvörn 

Setjið olíu í stóran pott og brúnið nautakinnarnar þar til þær eru orðnar gylltar allan hringinn. Takið kinnarnar úr pottinum og brúnið allt grænmetið þar til það er farið að mýkjast. Hellið víninu, vatninu og kraftinum út í pottinn ásamt tómatpúrreinu, kryddunum og svo kjötinu í lokinn. Setjið pottinn á væga suðu og lokið yfir. Eldið kjötið í 4 tíma en kíkið í pottinn á klukkutíma fresti til að athuga hvort að vökvinn fljóti ekki yfir kjötið.  Ef að vökvinn fer að minnka bætið þið vatni í pottinn. 

Nautakinnarnar 

Þegar kjötið er tilbúið takið þið það upp úr pottinum og skerið það gróft niður og smakkið það til með fínt rifna hvítlauknum, fínt rifna berkinum af sítrónunni og saltinu og piparnum.

Sósan 

Takið grænmetið og helminginn af vökvanum sem eftir er í pottinum og maukið saman með töfrasprota. Ef að sósan er of þunn bætið þá tómatpurré út í eftir smekk. Smakkið sósuna til með salti, pipar og safanum úr sítrónunni.



Meðlæti 

  • 500 gr þurrkað tagliatelle 

  • 1 box kirsuberjatómatar (skornir í helming)

  • 1 stk steikt rauð paprika 

  • 1 box steiktir sveppir 

  • 1 poki klettasalat

  • 1 stk sítróna (skorin í báta)

  • Parmesanostur 

  • Extra virgin ólífuolía 

  • Sjávarsalt

  • Svartur pipar

Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á pakka og blandið því saman við nautakinnarnar og sósuna ásamt tómötunum, steiktu sveppunum og paprikunni. Setjið pastað á diska og berið fram með klettasalatinu, parmesan ostinum og sítrónu bát. 

ER3113.jpg
Previous
Previous

Hægeldað nauta rib eye, bakað grænmeti í kryddolíu og tómat, steinseljuvinagretta.

Next
Next

Nautalund (Rossini) borin fram með steiktum kartöflum, sveppum og madeirasósu